Námskeið um björgun safngripa – Fyrstu viðbrögð við vá (vatnstjón)

Félag Norræna forvarða og Blái Skjöldurinn á Íslandi bjóða upp á námskeið um björgun safngripa og fyrstu viðbrögð við vá. Námskeiðið fer fram dagana 18 -19. september nk. á Árbæjarsafni en það er stutt af Safnaráði og Borgarsögusafni Reykjavíkur.


Hættan af náttúruvá, eldsvoðum og annarri vá er ávallt til staðar og eykst með auknum loftlagsbreytingum. Reynslan sýnir að góður árangur við björgun safngripa við slíkar aðstæður er háð því að viðbragðaðilar hafi fengið undirbúning og æft rétt handtök og viðbrögð. Tilgangur námskeiðs er að kenna safnafólki að skipuleggja og forgangsraða björgun safnkosts eftir vá og æfa verkferla og réttu handtökin. Eftir námskeiðið verða þátttakendur betur í stakk búnir til þess að bregðast rétt og örugglega við ef að einhverskonar vá á sér stað og ógn steðjar að menningarminjum.


Hluti af námskeiðinu er sviðsetning vatnstjóns á safni, þar sem m.a. annars má finna bækur, skjöl, ljósmyndir, málverk, leikföng og fleiri gripi. Með því að setja sig í viðbragstöðu og upplifa neyð í rauntíma læra þátttakendur að hugsa rökrétt og halda ró sinni í erfiðum aðstæðum. Þannig má bregðast fyrr við, nota réttar aðferðir og lágmarka tjón.


Markmið námskeiðsins er að ynnast aðstæðum sem skapast við viðbrögð við vá (vatnstjón) og æfa björgun safngripa.


Markhópur námskeiðisins eru starfsmenn menningarstofnana (bókasöfn, gripasöfn, listasöfn, skjalasöfn).

Leiðbeinendur eru Ingibjörg Áskelsdóttir og Nathalie Jacqueminet, forverðir og safnafræðingar. Báðar hafa þær reynslu af viðbrögðum og björgun gripa eftir vá.


Sambærilegt námskeið var haldið haustið 2023 fyrir starfsmenn Borgarsögusafns Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur og mældist mjög vel fyrir.

Námskeiðsgjald: 12.500 kr. (greitt fyrirfram). Boðið verði upp á kaffi og léttan hádegisverð báða daganna. Hámarksþátttakendur: 25

Dagskrá

Dagur 1
Kl. 09:00-16:00 (Mæting kl. 09:00. Taka fartölvu með).
Kl. 09:00-10:15 Bóklegt
– Safnið í neyð, Nathalie Jacqueminet, forvörður
– Viðbrögð við vá, reynslusaga: Flutningur safngripa úr sýningarrými. Ingibjörg Áskelsdóttir, forvörður
– Erindi frá viðbragðsaðila (eftir að tilgreina)
Kl. 10:15-10:30 Kaffi
Kl. 10:30- 12:15 Safngripir og vatn
– Erindi: Af hverju erum við hrædd við vatnstjón? (kl. 10:30-10:45
– Verkefni: Hvaða gripir eru viðkvæmir fyrir vatni, hópaskipting (kl. 10:45-11:15)
– Sýnikennsla: Blautir safngripir: hvernig lita þeir út? Meðhöndlun: hvað þarf að varast? (kl. 11:15-12:15)
Kl. 12:15-13:00 Hádegismatur
Eftir hádegi: verklegt
Kl. 13:00-16:00 Undirbúningur björgunar: verkefni
Kl. 13:00-13:15 Sviðmynd útskýrð og skipt í hópa. Allir fá að leika hlutverk, fá ábyrgð á verkefnum og framkvæma þau í tilgreindum hópum.
Kl. 13:15-15:15 Unnið í hóp
Kl. 15:15-16:00 Kynning á stöðu verkefna


Dagur 2: Viðbrögð við vá – Æfing
Kl. 09:00 Mæting fyrir framan slysstað. Hópstjórarnir tala við sinn hóp.
Kaffihlé og matarhlé: Aðgerðastjórinn ákveður hvenær hóparnir fara í mat eða kaffi í samráði við hópstjóra.
Kl. 14:30-kl. 16:00 Endurgjöf. Hóparnir segja frá reynslu dagsins.

Nánari upplýsingar um námskeiðið veita Nathalie (nathalieforvordur@gmail.com) og Ingibjörg (ingibjorg.askelsdottir@gmail.com).

Leave Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *