
Blái Skjöldurinn á Íslandi og Félag Norræna forvarða bjóða upp á námskeið um björgun safngripa og fyrstu viðbrögð við vá á Akureyri mánudaginn 2. júní nk. Námskeiðið er stutt af Safnaráði og Flugsafni Íslands þar sem námskeiðið fer fram.
Hættan af náttúruvá, eldsvoðum og annarri vá er ávallt til staðar og eykst með auknum
loftlagsbreytingum. Reynslan sýnir að góður árangur við björgun safngripa við slíkar
aðstæður er háð því að viðbragðsaðilar hafi fengið undirbúning og æft rétt handtök og viðbrögð. Tilgangur námskeiðsins er að kenna fólki sem fer með safnkost að skipuleggja og forgangsraða björgun safnkosts eftir vá og æfa verkferla og rétt handtök. Eftir námskeiðið verða þátttakendur betur í stakk búnir til þess að bregðast rétt og örugglega við ef að einhverskonar vá á sér stað og ógn steðjar að menningarminjum.
Leiðbeinendur eru Ingibjörg Áskelsdóttir og Nathalie Jacqueminet, forverðir og safnafræðingar. Báðar hafa þær reynslu af viðbrögðum og björgun gripa eftir vá.
Námskeiðsgjald er kr. 10.000 (greitt fyrirfram). Boðið verður upp á kaffi og léttan hádegisverð. Hámarksþátttakendur eru 25.
Skráning er hér (lýkur 30. maí)